Fallegir ósiðir

Elva Rut

01.04.2008 16:28:04 / elva

Nýjar myndir á Facebook

Ég setti inn myndir af partýinu á Laugardaginn á Facebook, Check it out people!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 16:19:51 / elva

Konni ammlisbaddn

Já Konni litli á afmæli í dag, til lukku með það kallinn :haha: Ég og Dabbi husband gerðum okkur leiðir og ákváðum að láta búa til köku fyrir hann sem var svona...

Á henni stendur ef að fólk sér það ekki "Elsku Konráður, Til lukku með að deyja ekki enn eitt árið" hehehe
Við létum setja þessa frægu mynd á sem að Dabbi gat ekki hætt að hlægja af, þessi mynd er eitthvað svo... ég er fullur með sólheima glottið mitt og lífið er wonderful hahaha

Já annars þegar köku boðinu var lokið þá var ég á leiðinni heim á miklabrautinni og það var bara allt frosið og troðfullt af bílum... nei herðu voru ekki trukkararnir að mótmæla og blokkuðu allar göturnar hehe
Ég tók eina mynd fyrir vikið...

Mér finnst þetta bara gott hjá þeim og mjög skiljanlegt, þetta bensín verð er bara gengið úr göbblonum.
Hérna er líka smá video....
YOUTUBE

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 14:20:14 / elva

Merkisfrétt

Ég var að lesa frétt á Mbl áðan og ég gat ekki annað en hlegið af henni....

Ísland burstaði Suður-Afríku

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí burstaði lið Suður-Afríku í 4. deild HM sem fram fer í Rúmeníu. Lokatölur urðu 9:1 fyrir Ísland og hefur liðið nú sigrað í fyrstu þremur leikjum sínum í mótinu.


HAHAHAHA auðvitað vinnur ísland Suður Afríku, þó við höfum ekki mikið af ís hérna á íslandi þá hefur S.Afríka bara ennþá minna af því.... æfa sig örugglega bara á línuskautum hehe.
En það er alveg ótrúlegt hvað telur sem "merkisfrétt" þegar íslendingar koma til greina. Eins og þegar íslendingur setur íslenskt met en samt er hann í 43 sæti á mótinu hahaha.
Ég varð bara aðeins að tjá mig um þetta mál.






» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 11:41:14 / elva

Got my internet back

Jæja long time no blog eins og maður segir. Það er svosem ekkert brjálað búið að vera að gerast upp á síðkastið. Ég og Dabbi erum búin að vera alveg geðveik vegna þess að internetið hjá okkur datt niður fyrir alveg meira en viku síðan, maður áttar sig ekki á hversu lamaður maður verður þegar maður missir internetið en við fengum það loksins í dag :haha:

Já ég og Sonja vinkona erum loksins byrjaðar í "bumban burt 2008" og losuðum okkur við sitthvor 2 kg í seinustu viku :haha: Byrjar svosem ekki leiðinlega, það er samt drullu erfitt að passa sig á hvernig maður borðar eða undir 2000 kcal á dag takk fyrir!! We can do this.... össss svo erum við búnar að plana bikiní ferð í Nauthólsvík í sumar til að sýna nýja kroppinn hahaha

já svo er náttúrulega Páskafríið að skella á núna, eins og maður þarf eitthvað á þessu fríi að halda en gaman samt að fá aðra í frí líka svona for a change.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 12:09:03 / elva

bara svona smá um mig

1. Hvað er klukkan? 12:08

2. Hvað er fullt nafn þitt? Elva Rut Jónsdóttir

3. Við hvað ertu hræddust/hræddastur? Að missa einhvern sem er náinn mér

4. Fæðingarstaður? Fæðingadeild Landspítlans

5. Uppáhalds matur? Hamborgarahryggur, piparsteik, Pasta, pizza........

6. Hver er þinn náttúrlegi hárlitur? Mosa ljótt brúnleitt, veit ekki meir en voða líflaust

7. Hefurðu einhvern tímann verið með tiltektaræði? já nokkrum sinnum sko

8. Einhvern tíman farið nakin að synda? hmmm neeei held bara ekki

9. Hefurðu elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið? já

10. Lent í bílslysi? já svona smá tremmu

11. Croutons (Brauðmolar) eða beikon bitar? Beikonbitar!!

12. Uppáhalds dagur vikunnar? Laugardagur

13. Uppáhalds veitingarhús? SPUR!!!

14. Uppáhalds blóm? rósir verð ég að segja

15. Uppáhalds íþrótt að horfa á? Handbolta, svo fótbolta i guess

16. Uppáhalds drykkur? vatn, bjór, Hunters...

17. Uppáhslds ís? Skafís með súkkulaðibragði

18. Warner Brothers/Disney? Warner eða Disney... tricky

19. Einhvern tímann farið í skip? já Heklu, Dísarfell og fl. (telst eyjarferðir með og ferjur?)

20. Hvernig er baðmottan þin á litinn? Hvít

21. Hversu oft féllstu á bílprófinu? 3svar :/ já já

22. Á undan þessu, frá hverjum fékstu þetta e-mail? Frá Achmed, hann sagði ég hefði unnið 115 milljónir í Lottó

23. Hvað gerirðu þegar þér leiðist? fer í tölvuna eða út að keyra eða í símann

24. Hvenær ferðu í rúmið? Yfirleitt milli 12 og 2

25. Hver verður fyrstur til að commenta? uuuuu örugglega enginn

28. Uppáhalds sjónvarps þáttur? SCRUBS, greys anatomy, heroes, desperate housewives, private practice, Chuck og fleiri.....

29. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Með Pabba, Eyrúnu og co

31. Uppáhalds litur? Grænn

32. Hvað ertu með mörg tattú? FIMM neeee bara einu eðluna mína

 33. Hvað áttu mörg gæludýr? Bara 1 hann Dabba :)

34. Hvor kom á undan eggið eða hænan? Whooo cares, ég vil steikt eða soðin egg takk

35. Hvað langar þig að gera áður en þú deyrð? bara liggja í leti hahaha nei mér langar að ná góðum árangri víða hvar um heim

36. Hefurðu komið til Hawaii ? Nei eða ég milli lenti þar

37. Hefurðu komið til annara landa en Bandaríkjana? já það má segja það

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 03:02:37 / elva

Mamma 51.árs

5. Mars er í dag og það er dagurinn til að minnast mömmu gömlu, blessuð sé minning hennar.

5.Mars hefur verið erfiðasti dagur ársins seinustu 2 ár, það er smá erfitt að hringja í tvíburasystir hennar mömmu og óska henni til hamingju með daginn vitandi að hún getur ekki haldið upp á með systir sinni og líka bara við yfir höfuð.
Þessi dagur tengi ég meira við dauðsfalli mömmu minnar en aðfangadag.
(það er þó léttir við að tengja það ekki við aðfangadag)

En í dag ætla ég að brosa og hugsa hlítt til hennar, ég ætla að reyna að frekar að halda upp á daginn heldur en að liggja í sorgum, ég veit að hún mundi segja mér að drulla mér út og hressa mig við hehe.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MAMMA MÍN:)
                                                          
OG ÞÓRA AUÐVITAÐ:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 20:33:44 / elva

Ekkert að frétta svosem

Já ég er bara að blogga til að blogga..... það er ekkert nýtt að frétta svosem eða jú kanski hummm sko ég var eitthvað að bralla á netinu um daginn og rakst á rosa skemmtilega síðu með allskonar atvinnu options um heiminn. Já ég tók nokkra sénsa og sótti um nokkur störf þar á meðal nokkrum starfsnámum. Og já ég fékk eitt svar frá fyrirtæki sem heitir Cutters og er semsagt í Los Angeles og ég er svona að leika mér að hugmyndinni að skella mér, þeir voru reyndar að leita af einhverjum sem getur verið 6 mán en ég má náttla bara vera í 90 daga max þannig að ég veit ekki hvernig þetta fer... það kemur í ljós og ef ég fer þá fer ég bara innan við mánuð :) Spennó
Ég er búin að tala við eina frænku mína hérna sem er leikstjóri og hún ætlar að athuga hvað hún getur gert en ef ekkert gerist þá fer ég bara út aðeins að leika mér og læra á meðan ég er ekki skuldbundin hérna.

Annars bara já hmmm...




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 14:19:26 / elva

Going Crazy

Ég þarf vinnu einn, tveir og bingo takk, ég er að verða vitlaus á þessu... .við erum að tala um að ég er að öfunda fólk sem er að læra heima svaka ritgerðir og allt saman, segið mér svo að það er ekki crazy. Maður er virkilega að spá hvort að maður eigi bara að skella sér í eitthvað meira nám;) ég er ennþá með New York á heilanum og langar svoooo að fara. En peningar þurfa víst að vera til staðar!

úfff það er meiriháttar kuldi úti núna, ég sem var að spá í að skella mér til keflavíkur en svo segir Sonja vinkona mér að það er að koma meiriháttar stormur, mér lýst ekkert á það. Hey if you dont have anything to do just call on your friend Elv, she is most likely available :haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:34:05 / elva

Fálkagata is great

Jæja er flutt inn á Fálkagötuna og má segja að þetta er eðal íbúð, ég væri alveg til í að eiga þessa íbúð, en maður hefur nú ekki efni á að borða hvað þá að kaupa íbúð :S

Já stelpurnar mínar eru farnar aftur til Aussie og þar á meðal skellti Jói sér með þeim til að kíkja á þetta Gull land og njóta sólarinnar, það er ekki vitlaust. Ég er nú strax farin að sakna þeirra og bara 400 dagar eða eitthvað þangað til að við sjáumst aftur NEEEEIIII herðu ég lýg því, við hittumst auðvitað í júlí í Tælandinu fræga. Við erum semsagt að fara all mörg saman í ferðalag og ég vil kalla þessa ferð árangursferð eða fagna góðum árangri hjá hverjum og einum, og ekki amarlegt að gera það í Tælandi þar sem sólin glampar og bjórinn kostar jafn mikið og vatnið :haha:

Vinna...... hmmmmmm ég vil ekkert tala um það uggghhh

LAter 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 13:33:13 / elva

Íbúð og bíll....check

jæja þá er þetta allt að koma þó að vinnan er ekki komin enn en það hlítur að fara að gerast.... Ég keypti mér loksins bíl um daginn, semsagt Opel Östru 2001 árgerð beinskiptur sem lítur svona út....  

Já og ég og Dabbi ákváðum að fara að leigja saman, og fundum okkur íbúð á fínum stað eða rétt hjá Háskólabíó semsagt á Fálkagötunni og verðum þar til 1 Apríl, þetta er svona gott Pitstop á meðan við erum að leita af öðru. :)

Já vinna já já já það getur hægara en allt annað, ég verð að reyna að finna mér einhverja aukavinnu á meðan, því flest af þessu sem ég er búin að sækja um er Freelance og er svolítill tími í næsta verkefni sem ég getur lagt hendur á, en ég er enn á fullu að leita mér af einhverju góðu. Hvernig væri að allir mundu bara alltaf óska sér að ég fái góða vinnu :haha:  össs hvað er ein ósk á milli vina???

Laters 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 00:13:43 / elva

Well o Well

jæja þá er nýja lífið hafið, en ekkert er komið sem ég hef efni á semsagt í sambandi við íbúð og bíla. Reyndar er bílalánið bara að koma í gegn þannig að það hlítur að gerast innan skamms.

íbúð: ekkert enn, en núna er ég flutt inn á fjölskylduna hennar Arndísar í smá tíma meðan ég er að koma þessu öllu í gang hjá mér, þau eru svo yndisleg við mig að taka mig svona inn. Það er bara svo erfitt að finna íbúð á hagstæðu verði fyrir mig eina, ég er búin að reyna að fá fólk í þetta með mér en Hótel Mamma og Pabbi virðist vinna yfir mitt tilboð. Ohhh það væri hentugt núna en það eru bara ekki allir sem hafa option um það því ver og miður.

Atvinna: ég er reyndar búin að fá símtal frá einu fyrirtæki (SF), og er sennilega ekki option núna að fara í klippun en það er nóg um að vera sem Cameru maður, sem ég er að fara að skoða að sjálfsögðu og á að fara núna á föstudaginn og fylgjast með þegar tekið verður upp í beinni. Þetta er æðislegt en maður má ekki vera of vongóður, þannig að please dont jinx this people...... Vona bara að ég standi mig ;)

Bíllinn: ég er að stokkera bílasölurnar núna og er alltaf að reyna að hafa mig í að prútta en ég er bara með svo lítið hjarta að ég get það ekki, ég á semsagt að vera hefí hörð og frek við þá bílasölumennina eeen ég bara brosi blítt og segi bara já já, þess vegna er ég búin að fá mér hægri hönd við kaupin:haha:

En ég nenni bara ekki að skrifa meir og já LATER 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 22:37:36 / elva

2008 Here we come

Ja hérna hér þá er þetta ár bara að taka enda og þetta hefur verið eitt hraðasta ár sem ég hef upplifað, meira að segja gekk ooooof hratt. En annars búið að vera gott ár hjá manni og maður er meira að segja búinn að ná sér í 2 titla undir nafn sitt... Margmiðlunarhönnuðinn og Diploma of Screen, ekki slæmur pakki.

Ég ætla rétt að vona að árið byrjar með trompi því nú er ég að fara að standa í því að leita af öllu í einu sem að lífið ætlast til að maður geri semsagt vinnu, íbúð og bíl... Bara ef það væri hægt að kaupa bara fjölskyldu pakka á 15 þús eins og flugeldana, en maður verður bara að harka að sér og þurrka tárin því ekkert gerist nema maður vinni endalaust í þessu. Og ekki má gleyma THE thing það er bumban burt eða allavega eitthvað af henni greyinu, bumban mín er búin að hafa það allt of gott seinustu 3 árin og má ekki við meiru ekki nema maður breyti um lífstíl og verður bara Súmó Wrestler hmmm....:haha:

Ég vona bara annars þið hafið það gott og þeir sem komu/a í Partýið 29. des hafi skemmt sér ÆÐISLEGA VEL,ÞAÐ ER LÍKA EINS GOTT........... og sjáumst hress á nýju ári bara 2008 baby


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 21:36:43 / elva

Gleðileg Jól

Ég vil bara óska landsmönnum Gleðileg Jól og Farsælt komandi ár

Þakka fyrir góð viðskipti á árinu sem er að líða ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 21:16:16 / elva

Kominn heim á klakann

Fær maður ekkert VELKOMIN HEIM VÍÍÍÍÍÍ!!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 18:12:18 / elva

Diploma of Screen DONE, Im going home

jebb þá er bara komið að því, meira að segja þegar þið lesið þetta sennilega þá er ég bara í flugvélinni á leiðinni í kuldann. Bara svo að það komi ykkur ekki að óvart þá erum við ekkert brúnar AF ÞVÍ að það er ekki búin að vera sól í viku eða eitthvað, ég held að Ástralía sé að venja okkur á rigninguna sem kemur fram undan 8|.

Ég útskrifaðist í dag by the way með DIPLOMA OF SCREEN, það var frekar ómerkilegt hvernig maður fékk það, maður bara fór að ná í blaðið hehe, ekkert celebration;)  En ég held upp á útskriftina later, fer að djamma eða eitthvað.

Pakki pakki stendur eins og er og án djóks þá er búið að taka stelpurnar 6 tíma í röð að pakka and still at it8|  klukkan er fimm um nóttina og við erum að halda vöku þangað til að við förum svo við getum vonandi sofið almennilega í vélinni enda rosa schedule:

Leggja af stað uppá völl kl 2 á eftir hádegi
Flug kl 6 um kvöld
10 klukkutíma flug til Bangkok
2 klukkutíma bið í Bangkok
12 tímar og 50 mín til London
6 tíma bið í london
3 tíma flug til íslands
40 mín keyrsla til Reykjavíkur
KOMNAR HEIM!!!

Pabbi gamli ætlar að koma að ná í skvísuna á völlinn klukkan 4 á miðvikudaginn, rosa spenntur að fá skvísuna heim :haha:  hver er það svosem ekki hehehe

Sjáumst bara mjöööög soon 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Myspace-ið mitt
Ísland
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1521 dögum